Þá eru jólin bara liðin! Flugu fram hjá án þess varla að maður
tæki eftir!
Við höfðum það annars bara ofsalega gott um jólin. Familían mín
kom og var hjá okkur yfir hátíðardagana og tengdó voru hjá okkur
dagana fyrir jól. Það var alveg æðislegt að fá svona heimsókn yfir
jólin og gerði það að verkum að heimþráin var lítil sem engin.
Við fórum í jólatívolí kvöldið 22.des og skoðuðum
jólastemninguna þar sem klikkar aldrei. Þorláksmessa var síðan
tekin í það að hlaupa á milli búða eins og almennilegum Íslendingum
sæmir að klára síðustu jólagjafirnar (eða bara allar þar sem á
þessu heimili var varla búið að kaupa neitt vegna
lesturs/lærdóms).... en Danir eru svo huggulegir að þeir hafa alveg
lokað á aðfangadag, þannig að við, hin óstundvísu Íslendingar
þurftum að vera búin að kaupa jólagjafirnar FYRIR aðfangadag...
úff.. það tók á sko!!
Við byrjuðum þó daginn á að skjótast
og kaupa eitt stykki alltof stórt jólatré sem sómir sér mjöööög vel
hér í stofunni enda fær það helming allrar stofunnar undir
sig! 
Á aðfangadag fóru tengdó síðan heim til Íslands, og á tímabili
leit það nú jafnvel út fyrir að þau yrðu bara hjá okkur yfir jólin
þar sem flugið var búið að vera í algjöru rugli til Íslands þessa
dagana... það hefði nú bara verið gaman að hafa þau líka! Það
endaði þó með "aðeins" 3 tíma seinkun hjá þeim og komu þau því
beint í jólamatinn hjá Sigrúnu (systir Eyþórs) og familýju!
Við elduðum önd með öllu tilheyrandi (ok, pabbi eldaði önd og sá
um allt...!
) og var það alveg ofboðslega gott
eins og alltaf.... Á jóladag var síðan hangikjöt með öllu
tilheyrand (grænum ora baunum og öllu!!) þar sem við höfðum fengið
endalaust magn af íslenskum "varningi"..... t.d. nóakonfekt,
laufabrauð og ýmislegt...!! Jólin voru því alls ekki af verri
kantinum og vantaði okkur hér um bil ekkert sem við höfum venjulega
nema jú auðvitað... restina af fjölskyldunni og vinina...!!! En það
styttist nú í Íslandsferðina í byrjun febrúar og kemur það uppá
móti, ekki satt?? 
Ég ákvað að taka bara frí þessa "frídaga/hátíðardaga" frá
lestrinum og hlaða aðeins batteríin enda sé ég fram á lítið líf
utan lestursins næsta mánuðinn
Var síðan byrjað aftur
af krafti í lestrinum eftir að familían fór aftur heim í
vatnaveröldina!
Við Eyþór byrjum svo bæði í skólanum aftur 2. janúar og er Eyþór
í fríi þangað til og sér um heimilið, mig og allt það sem því
fylgir á meðan.... algjör lúxus fyrir mig að þurfa ekkert að hugsa
um neitt nema lesturinn! En sem sagt... til þess að fá myndir
þurfið þið annað hvort að blikka Eyþór rosa vel eða bara bíða þar
til lok janúar kemur.. þá er ég komin í fríííííí!!!!
Við sendum engin jólakort í ár (frekar en síðustu jól
)
þar sem brjálaður lestur og lærdómur fyrir jólin gaf okkur engan
tíma til þess.... næst verður byrjað á jólakortum í nóvember takk
fyrir
En við sendum að sjálfsögðu kveðjur til
ykkar allra og gleðilegt nýtt ár eftir nokkra daga og takk fyrir
það gamla 
nú er kominn tími á rúmið hjá mér..... enda orðin rangeygð af
lestri dagsins!
hilsen
Nanna ofurstressaða þessa dagana......